|
Talið er að um það bil einn milljarður manna búi á Indlandi og af þeim munu um 80% játa trú hindúa. Hindúa finnst nú í flestum heimsálfum. Það er enginn sérstakur einstaklingur sem stofnaði hindúasið og ekki hægt að segja til um hvað þessi trúarbrögð séu gömul. Hindúasiður er ekki bara trúarbrögð heldur er hann samblanda fjölda átrúnaða, lífshátta of stefnu sem eru mismunandi eftir landsvæðum og hefur því ekki orðið til trúarbragðakerfi sem gildir alls staðar. Trúarheimur hindúa er undraveröld þar sem finna má guð með þúsung augu, fjögur höfuð eða sextán arma. Þeir sjá guði í öllu, eins og í trjám, kúm, fljótum eða maurum og bera því lotningu fyrir öllum hlutum.
|